13.01.2010 21:55:29 / ragga80
Já næsta færsla

Þessi er bara fyrir þig Hallbera mín

Það er að verða komin ár síðan ég gerði síðast færslu.
Margt og mikið hefur gerst á einu ári. Hætti í vinnu sem ég var búin að vera í rúm 5ár.
Fór í nýja vinnu hjá Eimskip. Hafði nóg að gera á rútunni. Fékk að fara fyrsta sinn til Ítalíu og Gatweak. Fór í stutta en góða ferð til Svíþjóðar á leik hjá Betu.
Ekki mikið annað gerðist á árinu

RaggZ´s is OFF
»
13.02.2009 19:37:24 / ragga80
Vá hvað tíminn flýgur hratt.
Síðast þegar ég gerði færslu var enn jólahátíð.
En núna er komin glænýtt ár og meira en það.
Það eru engar miklar fréttir af mér, nema kannski einna helst að á nýju ári fengum við Stjáni (Stjáni vinnur með mér í heildsölunni) uppsagnarbréf og allt í óvissu með framhaldið.
En maður reynir að gera sitt besta.
Þar til næst......
Raggz´s out
»
24.12.2008 17:07:32 / ragga80
Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
»
26.11.2008 09:47:23 / ragga80
Ég var að setja inn linkana af myndunum sem ég tók í Innflutnings-grímubúninga partý hjá Kötu og Þorvaldi.
Fyrri hluti
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LDGg
Seinni hluti.
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LDOA
Njótið þess.
Raggz´s off.
»
21.10.2008 16:13:57 / ragga80
Hérna eru þær myndir sem tók á lokahófi KSÍ sem var núna um helgina.
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LCxg
Kv.
Raggz
»
21.10.2008 13:57:10 / ragga80
Við erum ný komnar heim eftir viku ferð til Svíþjóðar þar sem riðill 2 var spilaður.
Og við spiluðum á móti Umea, Bardolino og Alma.
En því miður unnum við bara einn leik og það á móti Alma en töpuðum hinum tveim.
En ég var að setja inn myndir úr þeirri ferð, svo görið þið svo vel.
Mappa 1
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LCgg
Mappa 2
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LCoA
Ég sit linkana líka undir Bolta myndir hérna vinstra megin á síðuna.
Og ég er að vinna í KSÍ hófs myndunum, þær ættu að detta inn seinna í dag eða á morgun.
I´m off
Raggz
»
28.07.2008 14:09:31 / ragga80
Jæja á föstudaginn síðasta héldu Dóra María og Margrét Lára afmælispartý upp í VIP sal í Vodafonehöllinni.
Og var ég þar með mína myndavél eins og vanalega 
Ég varð að setja myndirnar í tvær möppur, margar mydnir eins og vanalega. 
Fyrri hluti.
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LCKA
Seinni hluti.
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2LCTg
Raggz´s is off. 
»
27.07.2008 23:22:53 / ragga80
1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir
bloggið/facebookið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru
spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í
sambandi við suma vini þína er að
því þeir eru ekki að blogga, ekki á
MySpace, facebook og eða á MinnSirkus .
4. Þú leitar frekar um
alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara á takkann á
sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir
framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og
brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa
þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer
fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar
væri númer
fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku
þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt
eða komdu þessu á
framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha
ekkert svona fyrst að þú
féllst fyrir þessu.
»
04.07.2008 21:26:31 / ragga80
Jæja fyrir þá sem ekki vita hvaða próf ég var að tala um færslunni hérna fyrir neðan.
Ég fór í meirapróf, ég var að læra um rútur. Og núna er ég komin með réttindi til að keyra Rútur.
Og er núna kölluð Ragga Rúta. 
Og ég er búin að vera að keyra á fullu, mín bara dugleg. Ég fór með hóp til Ólafsvíkur á síðasta laugardag og fór á sunnudeginum í óvissuferð upp í borgarnes með mínum flokk.
Ég fór í gær til þorlákshafnar með hóp líka og svo er nóg að keyra á næstunni.
Er á leið á Selfoss á morgun með hóp og svo á mánudaginn með annan hóp til Ólafsvíkur. Bara gaman. 
Og fyrir þá sem vita það ekki þá er ég með tvö tattoo og ég var í dag að bæta við annað þeirra.
Núna er ég komin með stafina mína á aðra löppina mína. 
En ég er rokin er á leiðinni út.
Raggz
»
25.06.2008 11:36:08 / ragga80
Vá hvað er búið að vera klikkað að gera.
Ég er loksins búin með kvöldskólan sem ég var í allan maí mánuð. Ég náði öllum prófunum þar.
Það er svo gaman að ná öllum prófunum, sérstaklega það er svo langt síðan ég var í skóla síðast. Vá flasback, ég var síðast í skóla 1997.
Svo var ég líka í prófi í gær sem ég náði líka. 
Í gær var haldi upp á að langafi minn og langamma hefðu átt stór afmæli.
Langamma hefði orðið 100 ára á mánudaginn og langafi hefði orðið 110 ára í gær og var haldið upp á þetta í gær. Það var gaman að hitta fjölskylduna sem maður hittir ekki svo oft.
Svo er nóg að gera líka í boltanum. Íslenska kvennalandsliðið er að spila seinni leikinn sinn á morgun svo eftir það fáum við landsliðs stelpurnar okkar aftur til okkar og svo er leikur hjá okkur eftir helgi.
Það er nóg að gera hjá 2 flokknum líka, þær eiga leik á morgun eftir landsleikin við blika.
Svo verður nóg að gera um helgina hjá mér. Segi frá því seinna.
Ég ætla að reyna að setja inn myndir úr afmælinu í gær á netið í kvöld og líka myndir sem ég tók um daginn þegar ég fór í sjóferð með Varðskipinu Ægir.
En ég verð að halda áfram að vinna.
Svo þar til næst.... 
Raggz´s out...
»
05.06.2008 09:39:57 / ragga80
Jæja þá er þetta komið aftur. 
Í dag verður maður árinu eldri 
»
22.04.2008 16:22:28 / ragga80
Ég rakst á þetta á You Tube og varð að láta fleirri sjá.
http://youtube.com/watch?v=V1Q9Ckra6vY
Skoðið þetta. Þetta er mergjað.
»
22.04.2008 16:20:01 / ragga80
Um liðna helgi var ég stödd á Akureyri með mfl kvk í smá æfingarferð.
Og eins og vanalega var ég með myndavélina mína með mér og tók nokkrar myndir. 
Ég sit myndirnar í tenglana undir boltamyndir og línki hérna að neðan.
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2L3w
- mappa eitt. Spurning dagsins hver er á fystu myndinni??
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2L5I
- mappa tvö.
Ég er farin, er að klára að vinna svo er leikur í kvöld.
Raggz´s out... 
»
07.04.2008 12:23:11 / ragga80
Núna í lok Mars fór Mfl. kvk í val í óvissuferð á vegum 3 leikmanna.
Dagurinn byrjaði á að faraí Klettaklifur fyrir þær sem gátu mætt snemma þennan dag.
Ég mætti með þeim í Klettaklifrið en tók bara myndir.
Eftir Klettaklifrið var stefnan tekin á Valsheimilið og þar gátu stelpurnar farið í sturtu sem vildu eftir að klifra aðeins. Svo far fengið sér pizza niður í valsheimili og þar vorum við sóttar af rútu sem pabbi Betu keyrði. Þaðan var haldið til Selfossar á leik hjá Orra með mfl kk í körfubolta sem við unnum.
Eftir leikin var haldið á leið í algera óvissu þar sem stelpurnar sem skipurlögðu þetta vissu ekki alveg hvar húsið sem við áttum að gista í var. En þetta gerði ferðina bara skemmtilegri. 
Að lokum fundum við húsið sem pabbi Önnu Garðars á, og lánaði okkur það yfir nótt. Takk fyrir það. Húsið er á lóð sem er 600 hektarar með vatni og alles. Um kvöldið var farið í ýmsa leiki áður en haldið var til náða sem var eftir miðnætti.
Við komum svo í bæinn daginn eftir um eittleitið eftir hádegið, og ég var ekki að vinna þann dag svo ég naut þess í botn að vera í fríi einn dag.
En ég var að setja inn myndir sem ég tók í þessari ferð. Ég náði því miður ekki að taka myndir í leiknum þar sem ég var á videóvél allan leikin en tók fullt af myndum í staðin.
Þetta er fyrri mappan af myndum.
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2Lzg
Þetta er seinni mappan af myndum
http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=0AcsW7Nmzat2L14
Myndirnar eru líka sem linkur í Bolta myndum, hérna vinstramegin á skjánum.
Back to work.
Raggz´s out.
»
23.03.2008 21:58:08 / ragga80
Ég vil óska öllum gleðilegra Páska.

»
Síður:
1 2 3 ...
9